Sir Alex: Kaupi ekki fleiri leikmenn

Sir Alex Ferguson með Shinji Kagawa og Nick Powell sem …
Sir Alex Ferguson með Shinji Kagawa og Nick Powell sem gengu í raðir United í sumar. AFP

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið muni ekki kaupa fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar í enda þessa mánaðar.

Ferguson hefur fengið til sín fimm nýja leikmenn í sumar. Þá Shinji Kagawa, Nick Powell, Alexander Büttner, Angelo Henriquez og Robin van Persie.

Fleiri leikmenn hafa verið orðaðir við Man. United en Ferguson er búinn að loka veskinu og ætlar að takast á við fyrri hluta tímabilsins með þann hóp sem hann hefur í höndunum.

„Við munum ekki kaupa fleiri leikmenn. Það eru engir leikmenn að koma né fara hjá okkur,“ segir Ferguson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert