Chelsea hefur formlega kvartað yfir dómaranum Mark Clattenburg sem dæmdi stórleik liðsins gegn Man. United í ensku úrvalsdeildinni í dag en United vann leikinn, 3:2.
Clattenburg sendi tvo leikmenn Chelsea af velli en forráðamenn liðsins kvörtuðu ekki yfir því heldur meintum dónaskap dómarans í garð tveggja leikmanna liðsins.
„Clattenburg talaði á mjög óviðeigandi hátt við tvo leikmenn okkar í leiknum í dag,“ segir í yfirlýsingu Chelsea en félagið vill ekki gefa út hvað Clattenburg á að hafa sagt.