Chris Waddle, fyrrum enskur landsliðsmaður sem lék meðal annars með Tottenham, Newcastle og Sheffield Wednesday, finnst það ofsögum sagt þegar talað er um David Beckham sem frábæran leikmann.
Beckham lagði skóna á hilluna í gær og hefur fátt annað verið rætt og ritað um síðan á Bretlandi. Beckham vann 24 bikara á 20 ára ferli og er fyrsti og eini Englendingurinn til að vinna meistaratitil í fjórum löndum. Hann var auk þess fyrirliði enska landsliðsins í mörg ár.
„Ef farið er yfir lista yfir bestu leikmennina í úrvalsdeildinni síðan hún var stofnuð kemst Beckham líklega ekki í hóp þeirra 1.000 bestu,“ segir Waddle við götublaðið The Sun. „Ég myndi segja að Beckham hafi verið góður leikmaður en ekki frábær.“
Beckham vann sex Englandsmeistaratitla með Manchester United og var tvívegis í öðru sæti í kjörinu um besta leikmann heims. Hann talaði í gær um hversu sárt það væri þegar fólk einblíndi meira á það sem hann hefur gert utan vallar en það sem hann hefur afrekað á knattspyrnuvellinum.
„Það hafa verið til miklu hæfileikaríkari leikmenn en hann í heiminum en Beckham gerði vel úr því sem hann hafði,“ segir Waddle.
„Ímynd hans er frábær og hann nýtti hana vel. Hann átti samt enga gabbhreyfingu og var ekkert sérstaklega fljótur en hann var góður í föstum leikatriðum og að gefa fyrir markið. Hann bjó til færi og mörk og stóð sig frábærlega fyrir sín lið.“
„Beckham sagði alltaf réttu hlutina, seldi treyjur og tryggði öllum liðum sem hann var hjá tekjur auk þess sem hann kom alltaf vel fram.“
„Sem leikmaður myndi ég segja að hann hafi verið frábær sendingamaður og mikill íþróttamaður. Fólk mun tala um hversu frábær hann var en ég myndi segja að hann hafi verið góður,“ segir Chris Waddle.