Stendur ekki í vegi fyrir Costa

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Diego Simeone þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Atlético Madrid segir að hann muni ekki standa í vegi fyrir framherjanum Diego Costa að fara til Chelsea bjóðist honum það tækifæri.

Costa hefur átt frábært tímabil með Atlético Madrid en liðið trónir á toppi spænsku deildarinnar og er komið í undanúrslit í Meistaradeildinni. Hann hefur skorað 26 mörk í 31 leik í deildinni Atlético heldur í vonina um að landa spænska meistaratitlinum í fyrsta sinn frá árinu 1996.

Chelsea hefur haft augastað á Costa en ljóst er að José Mourinho, stjóri Chelsea, ætlar að fá öfluga framherja til liðs við sig í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert