„Áttum ekki skilið að vinna“

Samir Nasri og Edin Dzeko niðurlútir að taka miðju í …
Samir Nasri og Edin Dzeko niðurlútir að taka miðju í kvöld. AFP

Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri Manchester City var vitaskuld ekki ánægður með leik sinna manna í kvöld en City varð að láta sér lynda jafntefli á móti botnliði Sunderland.

„Við spiluðum ekki vel og leikurinn á móti Liverpool var enn í huga okkar. Við áttum ekki skilið að vinna leikinn. Chelsea og Liverpool eru fyrir ofan okkur og því voru þetta góð úrslit hjá okkur og við þau dvínuðu okkar möguleikar á að vinna titilinn. Á þessum tímapunkti snýst þetta meira um hugarfar frekar en líkamlegt form. Það var greinilegt að leikurinn á móti Liverpool sat of mikið í huga minna manna,“ sagði Pellegrini.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert