Hazard í kapphlaupi við tímann

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Belginn Eden Hazard leikmaður Chelsea er í kapphlaupi við tímann að ná sér af meiðslum fyrir viðureign Chelsea og Atlético Madrid í Meistaradeildinni en liðin eigast við á  Vicente Calderon vellinum í Madrid í næstu viku.

Hazard verður ekki Chelsea-liðinu á morgun þegar það mætir Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en hann varð fyrir meiðslum í kálfa í leiknum gegn Paris SG í Meistaradeildinni í síðustu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert