Rodgers fær nóg af peningum

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, mun fá næga peninga til leikmannakaupa …
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, mun fá næga peninga til leikmannakaupa í sumar til þess að styrkja lið sitt. APF

Brendan Rodgers mun fá næga peninga til þess að kaupa leikmenn til Liverpool í sumar, ef marka má orð Ian Ayre eins af stjórnendum félagsins. Nú þegar ljóst er að Liverpool mun leika í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnistímabili mun ekki standa á stjórnendum félagsins að styrkja liðið, ekki síst varnarhluta þessa.

Að sögn Ayre verður auðveldara að fá leikmenn til Liverpool nú þegar ljóst er að liðið mun leika í deild þeirra allra bestu í Evrópu á næstu leiktíð. Leikmannahópur liðsins á núverandi keppnistímabili sé of fámennur til þess að takast á við stórverkefni eins og Meistaradeildina samhliða keppni á heimavígstöðvum. „Það var erfitt að fá leikmenn til félagsins þegar við vorum ekki í Meistaradeildinni, en við höfum þó verið heppnir að gera krækt í nokkra þrátt fyrir allt," segir Ayre

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert