Scholes kominn í lið með Giggs

Paul Scholes ásamt Darren Fletcher.
Paul Scholes ásamt Darren Fletcher. AFP

Ryan Giggs er þessa stundina að stjórna sinni fyrstu æfingu hjá Manchester United en hann var ráðinn til að stýra liðinu út leiktíðina eftir að David Moyes var látinn taka poka sinn.

Með Giggs í þjálfarateyminu eru Nicky Butt og Phil Neville og Paul Scholes hefur nú bæst í þennan hóð en þessir kappar léku lengi saman með United og unnu marga titla með félaginu. Samtals hafa þeir spilað 2.453 leiki með Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert