Ramires í bann fram á næsta tímabil

Sebastian Larsson og Ramiresí baráttunni um síðustu helgi.
Sebastian Larsson og Ramiresí baráttunni um síðustu helgi. AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Ramires, leikmaður Chelsea, var í dag úrskurðaður í fjögurra leikja bann fyrir að slá Sebastian Larsson í leik Chelsea og Sunderland um síðustu helgi.

Dómari leiksins sá atvikið ekki en aganefnd enska knattspyrnusambandið skoðaði myndband af því þar sem sást mjög greinilega þegar Ramires sló Larsson.

Ramires missir af stórleiknum við Liverpool á sunnudaginn og leikjunum við Norwich og Cardiff. Síðasti leikurinn sem hann tekur út í banni verður svo í byrjun næstu leiktíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert