Henderson: Gerrard bestur frá upphafi

Jordan Henderson.
Jordan Henderson.

Jordan Henderson sparaði ekki stóru orðin um liðsfélaga sinn og fyrirliða hjá Liverpool, Steven Gerrard, eftir að hann sagði skilið við enska landsliðið en Henderson telur Gerrard vera besta leikmann Englands frá upphafi.

„Hann er líklega besti leikmaður sem þetta land hefur alið af sér, ekki einungis sem leikmaður heldur sem leiðtogi og fyrirliði,“ sagði Henderson.

„Það er frábært fyrir mig að spila með honum og vonandi get ég náð að spila með honum í langan tíma hjá Liverpool,“ sagði Henderson og hélt áfram.

„Hann hefur enn stóru hlutverki að gegna hjá Liverpool. Það hefur væntanlega haft áhrif á ákvörðun hans að vera ferskur og spila meistaradeildarbolta. Hann vill ganga úr skugga um að hann sé 100% klár í hvern einasta leik,“ sagði Henderson í viðtali við vefsíðu Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert