Aspas: Komið fram við Suarez eins og morðingja

Iago Aspas finnst refsing Suárez of hörð.
Iago Aspas finnst refsing Suárez of hörð. AFP

Iago Aspas, fyrrverandi samherji Luis Suárez hjá Liverpool, segir að farið sé með Suárez eins og morðingja en ekki knattspyrnumann í kjölfar bannsins sem hann fékk fyrir að bíta Ítalann Giorgio Chiellini á HM í Brasilíu.

„Þeir [FIFA] koma fram við Luis eins og morðingja en ekki knattspyrnumann. Það að leyfa honum ekki að vera kynntur [sem leikmaður Barcelona], eða æfa og koma inn á völlinn er of mikið,“ sagði Aspas sem gekk illa að festa sig í sessi hjá Liverpool á síðustu leiktíð og náði ekki að skora nema eitt mark en leikmaðurinn hefur nú verið lánaður til Sevilla á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert