Gylfi búinn í læknisskoðun hjá Swansea

Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson mbl.is/Golli

Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu er í þann veginn að fara að ganga frá samningum við velska félagið Swansea City eftir að hafa staðist læknisskoðun þar í dag.

Ólafur Már bróðir hans staðfesti þetta á Twitter rétt í þessu og sagði að samningurinn við félagið gæti verið frágenginn síðar í dag eða á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert