Hollenski markvörðurinn Michel Vorm sem gekk á dögunum til liðs við Tottenham frá Swansea er vongóður um að fá að spila fyrir félagið en hinn franski markvörður Hugo Lloris er sem kunnugt er fyrsti markvörður liðsins.
Vorm er bjartsýnn, meðal annars vegna þess að Tottenham spilar nú í Evrópudeildinni.
„Hver einasti klúbbur þarf tvo markverði í leikmannahóp sinn. Það hentar stefnu félagsins að hafa bæði mig og Hugo. Sérstaklega þar sem Tottenham er í Evrópudeildinni,“ sagði Vorm.