Argentínski knattspyrnumaðurinn Eric Lamela skoraði tvívegis fyrir Tottenham Hotspur gegn kanadíska liðinu Toronto FC í nótt þegar liðin mættust í æfingaleik í Vancouver.
Tottenham vann leikinn 3:2 þar sem Andros Townsend skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok. Lamela kom Tottenham í 2:0 fyrir hlé en Wiedeman og Hamilton skoruðu fyrir Toronto í seinni hálfleiknum og jöfnuðu metin í 2:2.
Jermain Defoe, sem fór til Toronto frá Tottenham snemma á þessu ári, var fyrirliði kanadíska liðsins í leiknum en liðið spilar í bandarísku MLS-deildinni.
Bakvörðurinn Ben Davies, sem Tottenham keypti af Swansea í gær, var mættur til Vancouver og var í byrjunarliði Lundúnaliðsins.