Lampard til New York City FC

Frank Lampard er á leiðinni til New York.
Frank Lampard er á leiðinni til New York. AFP

Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard hefur gengið til liðs við bandaríska knattspyrnuliðið New York City FC. Lampard kemur til liðsins á frjálsri sölu frá Chelsea þar sem hann hefur leikið í þrettán ár.

Lampard gekk lið liðs við Chelsea frá West Ham fyrir 11 milljónir punda árið 2001 og lék fyrir liðið 649 leiki og skoraði í þeim 211 mörk. 

Hið nýstofnana félag New York City FC mun spila í bandarísku A-deildinni, MLS deildinni en leiktímabilið hefst í byrjun árs 2015. Liðið er í eigu sömu eigenda og eiga Manchester City.

Hjá liðinu mun Lampard hitta spænska framherjann David Villa sem gekk í raðir félagsins frá Atlético Madrid eftir síðasta tímabil þar sem hann varð spænskur meistari með félaginu og lenti í 2. sæti í Meistaradeild Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert