Arsenal að fá enn eina stjörnu Southampton

Calum Chambers sem hér er í baráttu við Yoan Gouffran …
Calum Chambers sem hér er í baráttu við Yoan Gouffran er á leið til Arsenal. AFP

Enski varnarmaðurinn Calum Chambers er á leið til Arsenal frá Southampton, en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverðið sem er talið vera um 16 milljónir punda.

Hinn 19 ára gamli Chambers hefur þegar gengist undir læknisskoðun og verður annar hægri bakvörðurinn sem Arsenal fær í sumar á eftir Mathieu Debuchy, en Chambers getur þó líka leyst stöðu miðvarðar.

Enn fækkar því í aðalliði Southampton frá síðustu leiktíð, en þeir Rickie Lambert, Adam Lallana og Luke Shaw eru allir horfnir á braut og talið að Dejan Lovren og Morgan Schneiderlin séu einnig á útleið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert