Schneiderlin og Rodriguez á leið til Tottenham

Morgan Schneiderlin í baráttunni við Carlos Tévez í leik Southampton …
Morgan Schneiderlin í baráttunni við Carlos Tévez í leik Southampton og Manchester City 2012. AFP

Enn heldur flóttinn mikli frá Southampton áfram. Nú greinir BBC frá því að franski miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin og enski framherjinn Jay Rodriguez séu nálægt því að ganga í raðir Tottenham Hotspur.

Gangi kaupin eftir hjá Tottenham verða ansi fáir fastamenn eftir hjá Southampton frá því á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Þegar hafa Luke Shaw, Adam Lallana, Dejan Lovren, Ricky Lambert, Calum Chambers og Guly do Prado horfið á braut frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert