Rodriguez og Schneiderlin ekki til sölu

Jay Rodriguez er ekki til sölu.
Jay Rodriguez er ekki til sölu. AFP

Stjórnarformaður Southampton, Ralph Krueger segir að leikmennirnir Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin séu ekki til sölu en sterkur orðrómur hefur verið uppi um að fyrrverandi knattspyrnustjóri liðsins, Mauricio Pochettino sem nú stýrir liði Tottenham hafi viljað fá leikmennina.

„Jay Rodriguez og Morgan Schneiderlin munu verða í leikmannahópi liðsins á næsta tímabili,“ sagði Krueger í samtali við BBC. 

Alls hafa níu leikmenn yfirgefið Southampton í sumar, þar ber helst að nefna þá Rickie Lambert, Luke Shaw, Adam Lallana, Dejan Lovren og Calum Chambers þrátt fyrir að Krueger hafi sagt fyrr á árinu að þeir myndu ekki fara.

Ljóst er að það verður afar spennandi að sjá hvernig nýjum stjóra Southampton Ronald Koeman gengur að setja saman liðið fyrir komandi tímabil en hann getur andað léttar, í bili að minnsta kosti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert