Mourinho: Tækni Costa mjög, mjög góð

Costa (t.v.) í leik með Chelsea.
Costa (t.v.) í leik með Chelsea. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea telur að Diego Costa framherji liðsins sem gekk í raðir þeirra bláklæddu fyrr í sumar sé frábær viðbót við hópinn. Mourinho segir marga leikmenn liðsins undrast það hversu mikið Costa er fær um að gera.

„Hann er frábær viðbót við hópinn. Hann er frábær leikmaður,“ sagði Mourinho sem segir tækni hans verulega góða.

„Tæknilega er hann mjög, mjög góður. Það er ástæðan fyrir því að leikmenn eru svo glaðir og hissa. Gæðin sem hann býr yfir eru meiri en þeir bjuggust við,“ sagði Mourinho sem segir að það fyrsta sem fólk sjái oftar en ekki vera það hversu líkamlega sterkur hann sé.

„Þegar fólk horfir á hann spila er það fyrsta sem það sér að hann leggur hart að sér fyrir liðið og að hann sé sterkur líkamlega,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert