Dzeko framlengir við City

Edin Dzeko skrifar undir nýjan samning við City í dag.
Edin Dzeko skrifar undir nýjan samning við City í dag. Ljósmynd/Twitter

Bosníski framherjinn Edin Dzeko gerði í dag nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Manchester City í knattspyrnu. Dzeko hefur leikið við góðan orðstír hjá City frá árinu 2011 þegar City keypti kappann frá Wolfsburg í Þýskalandi.

Dzeko er 28 ára og lék stóra rullu þegar City varð Englandsmeistari í vor. Hann skoraði 16 mörk í 31 leik í ensku úrvalsdeildinni síðasta vetur, mörg markanna eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert