Liverpool með tilboð í Balotelli?

Mario Balotelli gæti endað hjá Liverpool.
Mario Balotelli gæti endað hjá Liverpool. AFP

Því er haldið fram á breska miðlinum Metro í dag að enska knattspyrnuliðið Liverpool hafi gert AC Milan á Ítalíu tilboð upp á 17,6 milljónir punda í ítalska framherjann Mario Balotelli.

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool hefur ekki farið í grafgötur með það að hann sé í leit að sóknarmanni eftir að Luis Suárez var seldur til Barcelona fyrir metfé fyrr í sumar.

Balotelli er 24 ára og verið í herbúðum AC Milan frá árinu 2013 þegar hann var keyptur þangað frá Manchester City þar sem hann lék á árunum 2010-2013. Áður lék hann með Inter Mílanó og Lumezzane.

Balotelli þykir afar litríkur og uppátektarsamur, enda fylgir setningin Why always me eða Af hverju alltaf ég, honum hvert fótmál eftir fjölmörg uppátæki hans í gegnum tíðina sem hafa ratað í fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert