Nani mættur til Lissabon

Nani umkringdur stuðningsmönnum Sporting í Lissabon í dag.
Nani umkringdur stuðningsmönnum Sporting í Lissabon í dag. Ljósmynd/Twitter

Portúgalski landsliðsmaðurinn Nani, sem leikið hefur með Manchester United frá árinu 2007 er mættur á sínar heimaslóðir í Lissabon, höfuðborg Portúgals þar sem gert er ráð fyrir að gengið verði frá eins árs lánssamningi kappans frá United til Sport Lissabon.

Nani sem er 27 ára lék með Sporting á árunum 2005-2007 áður en United keypti hann fyrir 25,5 milljónir evra. Í september í fyrra skrifaði Nani undir nýjan samning við Manchester United sem gildir til ársins 2018.

Hann var ekki í byrjunarliði United gegn Swansea í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag, en kom þó inn á fyrir Javier Hernandez í hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert