Tottenham marði sigur á Kýpur

Byrjunarliðð Tottenham í dag.
Byrjunarliðð Tottenham í dag. AFP

Tottenham fagnaði 2:1 sigri gegn AEL Limassol þegar liðin áttust við í fyrri leiknum í 4. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu á Kýpur í dag.

Heimamenn komust yfir strax á 14. mínútu og staðan var 1:0 allt þar til stundarfjórðungur var til leiksloka. Þá jafnaði Spánverjinn Roberto Soldado fyrir Lundúnaliðið og þar var síðan Harry Keane sem skoraði sigurmarkið á 80. mínútu leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert