Vargas til liðs við QPR

Eduardo Vargas, hvítklæddur, í leik með Sílemönnum á HM í …
Eduardo Vargas, hvítklæddur, í leik með Sílemönnum á HM í sumar. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið QPR staðfesti nú undir kvöld að það hafi fengið Eduardo Vargas sóknarmann frá Síle að láni frá ítalska liðinu Napoli.

„Eduardo er gæða leikmaður. Hann er beittur og er líflegur með og án bolta,“ segir Harry Redknapp knattspyrnustjóri QPR.

Vargas er 24 ára gamall sem sýndi góð tilþrif með Sílemönnum á HM í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert