Welbeck má yfirgefa Man. Utd

Danny Welbeck gæti verið á förum frá Manchester United.
Danny Welbeck gæti verið á förum frá Manchester United. AFP

Danny Welbeck hefur verið tjáð að honum sé frjálst að yfirgefa Manchester United áður en lokað verði fyrir félagaskipti um mánaðamótin.

Þetta fullyrðir Daily Telegraph í dag. Þar segir að þessi tíðindi veki áhuga bæði Arsenal og Tottenham sem hafi áður reynt að fá Welbeck í sínar raðir.

Welbeck á tvö ár eftir af samningi sínum við United. Hann er 23 ára og sagður falur fyrir um 15 milljónir punda.

Samkvæmt frétt Telegraph ætlar Louis van Gaal að treysta á Wayne Rooney, Robin van Persie og Javier Hernández sem sóknarmenn United í vetur og því sé Welbeck frjálst að fara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert