Aston Villa ekki enn fengið á sig mark

Alan Pardew og hans menn sóttu stig á Villa Park …
Alan Pardew og hans menn sóttu stig á Villa Park í dag. AFP

Aston Villa og Newcastle gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Villa Park í hádeginu.

Villa komst því alla vega tímabundið á topp deildarinnar en liðið er með 4 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar og hefur enn ekki fengið á sig mark. Þetta var fyrsta stig Newcastle sem tapaði fyrir Manchester City í fyrstu umferð.

Mike Williamson, leikmaður Newcastle, fékk tvö gul spjöld og þar með rautt undir lokin fyrir brot á Darren Bent og Fabian Delph.

Enski boltinn heldur áfram í dag og er hægt að fylgjast með öllu sem gerist í ENSKA BOLTANUM Í BEINNI hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert