Liverpool tilbúið með Eto'o í stað Balotelli

Samuel Eto'o.
Samuel Eto'o. AFP

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool er með vaðið fyrir neðan sig. Ensku blöðin greina frá því í morgun að hann sé búinn að undirbúa kaup á framherjanum Samuel Eto'o til öryggis fari svo að ekkert verði úr kaupum félagsins á Ítalanum Mario Balotelli.

Eto'o gekkst undir læknisskoðun í Paris í gær þar sem hann býr og hann hefur í öllum grundvallaratriðum samþykkt eins árs samning við Liverpool og er tilbúinn að skrirfa undir samninginn fái hann grænt ljós.

The Mirror greinir frá því að Rodgers vilji ræða við Balotelli undir fjögur áður en Liverpool festir kaup á framherjanum og þess vegna sé hann með Eto'o til taks á hliðarlínunni en Kamerúinn er án félags eftir að samningur hans við Chelsea var ekki framlengdur í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert