Arsenal með augastað á Welbeck

Danny Welbeck.
Danny Welbeck. AFP

Arsenal er sagt hafa sett sig í samband við Manchester United um kaup á framherjanum Danny Welbeck.

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal þarf nauðsynlega á framherja að halda en Frakkinn Oliver Giroud er úr leik út árið eftir að í ljós komi að meiðslin sem hann hlaut á ökkla í leiknum á móti Everton um síðustu helgi eru verri en haldið var í fyrstu.

United vill fá 16 milljónir punda fyrir Welbeck sem virðist ekki vera inni í framtíðarplönum Louis van Gaal en Welbeck er uppalinn United maður sem var í láni hjá Sunderland fyrir nokkrum árum. Hvort Manchester United er reiðubúið að láta Welbeck fara til Arsenal á eftir að koma í ljós en Arsenal þarf að hafa hraðar hendur því félagaskiptaglugganum verður lokað á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert