Balotelli í vestisvandræðum á ný

Það er alltaf fjör í kringum Balotelli.
Það er alltaf fjör í kringum Balotelli. AFP

Það var frægt þegar Mario Balotelli lenti í vandræðum með að komast í æfingavesti sitt þegar hann var á mála hjá Manchester City, og þurfti hjálp þjálfara síns við að komast í flíkina.

Eitthvað svipað virtist vera uppi á teningnum á æfingu hjá hans nýja liði í morgun eins og meðfylgjandi mynd sýnir, en hvort hún hafi bara verið tekin á hárréttu augnabliki skal látið ósagt.

Þar fyrir neðan má svo sjá vestisvandræði Balotellis á sínum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert