Segja að Vidal sé klár á Old Trafford

Arturo Vidal.
Arturo Vidal. EPA

Ítalska blaðið Gazzetta Dello Sport fullyrðir að Manchester United sé búið að ganga frá samningum við Juventus um kaupin á Sílemanninum Arturo Vidal.

Blaðir greinir frá því að miðjumaðurinn snjalli sé búinn að ná samkomulagi um kaup og kjör hjá Manchester-liðinu sem lengi hefur verið á höttunum eftir honum. Talið er United þurfi að punga út 34 milljónum punda fyrir Sílemanninn.

Í gær gekk United frá kaupunum á argentínska landsliðsmanninum Angel Di Maria fyrir metfé og Louis van Gaal er ekki búinn að loka veski sínu. Hann vill frekari liðstyrk áður en félagaskiptaglugganum verður lokað á mánudaginn og skyldi engan undra miðað við frammistöðu liðsins í upphafi leiktíðar svo ekki sé talað um á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert