Cambiasso samdi við Leicester

Esteban Cambiasso.
Esteban Cambiasso. AFP

Leicester, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, fengu heldur góðan liðsstyrk í kvöld en argentínski reynsluboltinn Esteban Cambiasso skrifaði þá undir eins árs samning við félagið.

Cambiasso, sem er 34 ára gamall, var án félags en hann lék í 10 ár með liði Inter sem í kvöld burstaði Stjörnumenn, 6:0, í Evrópudeildinni. Þá hefur Cambiasso leikið með liðum á borð við Real Madrid, Independiente og River Plate en hann hefur unnið titla bæði á Spáni og á Ítalíu. Cambiasso á að vaki 52 leiki með argentínska landsliðinu.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert