Costa úr leik í næstu leikjum

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Diego Costa, framherji Chelsea, kemur til með að missa af næstu leikjum liðsins vegna meiðsla.

Costa, sem hefur byrjað tímabilið með Chelsea afar vel þar sem hann hefur skorað í fyrstu tveimur leikjum liðsins í deildinni, tognaði aftan í læri á æfingu Lundúnaliðsins í gær og í versta falli gæti hann orðið frá æfingum og keppni næstu sex vikurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert