Tottenham af öryggi í riðlakeppnina

Paulinho og Andros Townsend skoruðu báðir í kvöld og fagna …
Paulinho og Andros Townsend skoruðu báðir í kvöld og fagna hér marki. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham komst í kvöld áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Hull sat hins vegar eftir með sárt ennið.

Tottenham vann 3:0 sigur á Limassol frá Kýpur á White Hart Lane í kvöld, eftir að hafa unnið útileikinn 2:1. Harry Kane, Paulinho og Andros Townsend skoruðu mörk Tottenham í kvöld.

Hull, silfurlið ensku bikarkeppninnar frá síðasta tímabili, vann 2:1-sigur á Lokeren frá Belgíu í kvöld. Hull tapaði hins vegar fyrri leiknum 1:0 og því komust Belgarnir áfram á útivallarmarki sínu.

Robbie Brady kom Hull í 2:1 í kvöld á 55. mínútu með sínu öðru marki en þar við sat. Ekki bætti úr skák að Yannick Sagbo fékk að líta rauða spjaldið 20 mínútum fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert