Costa í hópnum gegn Everton

Diego Costa hefur farið vel af stað með Chelsea.
Diego Costa hefur farið vel af stað með Chelsea. AFP

Framherjinn Diego Costa verður í leikmannahópi Chelsea gegn Everton á morgun þrátt fyrir að hafa átt við meiðsli að stríða aftan í læri í vikunni.

Costa meiddist á æfingu og var jafnvel talið að hann yrði úr leik næstu sex vikurnar. Hann komst hins vegar heill í gegnum æfingu Chelsea-manna í dag og er tilbúinn til að spila gegn Everton á morgun samkvæmt fréttum enskra miðla.

Það kemur hins vegar í ljós á morgun hvort þetta þýði að Costa byrji leikinn, líkt og hann hefur gert í fyrstu tveimur umferðunum, en hann hefur skorað í þeim báðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert