Tottenham fær franskan miðjumann

Benjamin Stambouli (t.h.) í leik með Montpellier.
Benjamin Stambouli (t.h.) í leik með Montpellier. AFP

Tottenham hefur samið við franska knattspyrnufélagið Montpellier um kaup á varnarsinnaða miðjumanninum Benjamin Stambouli.

Stambouli á sjálfur eftir að semja um kaup og kjör við Tottenham og gangast undir læknisskoðun, samkvæmt yfirlýsingu á heimasíðu Montpellier, en ætla má að hann verði svo leikmaður Lundúnaliðsins.

Stambouli er 24 ára gamall og varð franskur meistari með Montpellier vorið 2012. Hann hefur verið viðloðandi franska landsliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert