Kagawa fer aftur til Dortmund

Shinji Kagawa.
Shinji Kagawa. AFP

Japanski knattspyrnumaðurinn Shinji Kagawa er á leið frá Manchester United aftur til Borussia Dortmund aðeins tveimur árum eftir að hafa skrifað undir samning við United.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Kagawa muni skrifa undir fjögurra ára samning við þýska liðið sem seldi hann til Manchester United fyrir 12 milljónir punda fyrir tveimur árum.

Japaninn hefur aldrei náð að festa sig í sessi hjá Manchester-liðinu og hefur hlutskipti hans verið að verma varamannabekkinn meira og minna frá því að hann kom til United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert