Blind orðinn leikmaður United

Daley Blind er kominn til Man Utd.
Daley Blind er kominn til Man Utd. AFP

Manchester United hefur gengið frá kaupunum á hinum hollenska Daley Blind frá Ajax og er kaupverðið talið nema 14 milljónum punda, en hollenska félagið staðfesti það fyrir stundu.

Blind lék undir stjórn Louis van Gaals, knattspyrnustjóra United, með hollenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar.

Með kaupunum hefur United samtals eytt 146 milljónum punda til leikmannakaupa í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert