Boyd samdi við Burnley

George Boyd er kominn til Burnley.
George Boyd er kominn til Burnley. Ljósmynd/Twitter

Skoski kantmaðurinn George Boyd samdi í dag við Burnley sem leikur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrny. Boyd sem kemur frá Hull City skrifaði undir þriggja ára samning við Burnley sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni.

Boyd er 28 ára og skoraði 2 mörk í 30 leikjum fyrir Hull á síðustu leiktíð. Hann á að baki tvo A-landsleiki fyrir Skotland.

Fylgist með félagaskiptaglugganum í beinni hér á mbl.is í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert