Coates lánaður til Sunderland

Sebastián Coates er kominn til Sunderland.
Sebastián Coates er kominn til Sunderland.

Liverpool hefur lánað Sunderland úrúgvæska varnarmanninn Sebastián Coates út yfirstandandi leiktíð. 

Coates, sem er 23 ára gamall, hefur aðeins leikið 24 leiki með Liverpool og skorað 2 mörk síðan hann kom frá Nacional sumarið 2011.

Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá Coates en hann missti af mestum hluta síðasta keppnistímabils af þeim sökum. Hann fór að láni heim til Nacional til að ná sér og vann sér sæti í landsliði Úrúgvæ fyrir HM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert