Hernández til Hull fyrir metfé

Abel Hernández er orðinn leikmaður Hull.
Abel Hernández er orðinn leikmaður Hull. Ljósmynd/hullcitytigers.com

Hull City gekk í dag frá kaupum á úrúgvæska landsliðsframherjanum Abel Hernández frá Palermo á Ítalíu. Félagið segist hafa keypt kappann fyrir metfé en nákvæm upphæð hefur ekki verið gefin upp.

Hernández er 24 ára gamall og lék með Úrúgvæ á HM í Brasilíu í sumar. Hann samdi til þriggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár.

„Við erum að gera frábær kaup með því að fá Abel og þetta sýnir hve langt félagið er komið á stuttum tíma,“ sagði Steve Bruce knattspyrnustjóri Hull.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert