Hólmbert kominn til Bröndby

Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn til liðs við Bröndby í …
Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn til liðs við Bröndby í Danmörku. Ljósmynd/Bröndby

Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir danska úrvalsdeildarliðsins Bröndby á eins árs lánssamningi frá Celtic í Skotlandi. Bröndby hefur svo forkaupsrétt á Hólmberti að ári liðnu.

Celtic keypti Hólmbert frá Fram síðasta haust, en framherjinn hefur ekki átt upp á pallborðið hjá aðalliði Celtic að neinu ráði ennþá og þegar Celtic lék gegn KR í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í sumar sagði Ronny Deila knattspyrnustjóri liðsins að Hólmbert yrði hugsanlega lánaður til að fá reynslu.

Bröndby er í 3. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig eftir 6 leiki.

Fylgist með félagaskiptaglugganum í beinni hér á mbl.is í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert