Framherjinn Alvaro Negredo var í kvöld lánaður til spænska félagsins Valencia, en hann kemur frá Englandsmeisturum Manchester City.
Negredo var keyptur síðasta sumar frá Sevilla og skoraði 9 mörk í 32 leikjum, en hann var í miklu aukahlutverki hjá City.
Hann sló áður í gegn hjá Sevilla og skoraði 70 mörk í 139 leikjum með Sevilla, en hann mun klæðast treyju númer 7 hjá Valencia.
DEAL DONE: Valencia have signed Alvaro Negredo on a season-long loan deal from Man City. (Source: @valenciacf) pic.twitter.com/oEw2zn60Da
— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) September 1, 2014