Hinn tvítugi John Stones leikmaður Everton leikur sinn fyrsta landsleik fyrir Englendinga á morgun þegar þeir mæta Normönnum á Wembley í vináttuleik.
Roy Hodgson landsliðsþjálfari Englendinga greindi fjölmiðlum frá því í Watford í kvöld hvernig hann stillir upp byrjunarliðinu og mun Stones spila í stöðu hægri bakvarðar.
Byrjunarlið Englendinga: Joe Hart; John Stones, Phil Jones, Gary Cahill, Leighton Baines; Jordan Henderson, Jack Wilshere; Alex Oxlade-Chamberlain, Wayne Rooney (fyrirliði), Raheem Sterling; Daniel Sturridge.