Wenger: Lítur ekki vel út fyrir Debuchy

Wenger á hliðarlínunni í dag.
Wenger á hliðarlínunni í dag. AFP

„Þetta var leikur sem hafði upp á að bjóða mikil gæði. Við gerðum vel að koma til baka en við gáfum þeim ódýrt mark í lokin,“ sagði Arsénse Wenger knattspyrnustjóri Arsenal eftir leikinn gegn Manchester City fyrr í dag þar sem liðin skildu jöfn 2:2.

Frakkinn Mathieu Debuchy meiddist illa í leiknum og Wenger segir stöðuna ekki líta vel út hjá Frakkanm.

„Hann tognaði illa. Ég veit ekki hversu lengi hann verður frá en þetta lítur ekki vel út, “ sagði Wenger en Danny Welbeck fór af velli og virtist meiddur.

„Welbeck fékk krampa en hann ætti að vera í lagi. Hann gerði vel í leiknum í dag en hann þarf að þróa leik sinn. Hann virkaði oft og tíðum hættulegur,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka