Knattspyrnustjóri Arsenal, Arséne Wenger segir að Danny Welbeck muni bæta miklu við spilamennsku Arsenal en þó eigi ekki að setja of mikla pressu á hinn 23 ára gamla sóknarmann.
„Ég held að Danny Welbeck muni bæta miklu við spilamennsku okkar. Við skulum samt sem áður ekki setja of mikla prsesu á hann. Við skulum njóta þess að horfa á hann spila,“ sagði Wenger sem segir sína menn klára í slaginn gegn Manchester City sem hefst eftir fimmtán mínútur.
„Aaron Ramsey er orðinn góður, Jack Wilshere er hefur 95% af styrk sínum og það verður mikilvægt að hafa hann á miðjunni. Við stóðum okkur ekki nægilega vel í þessum leikjum á síðasta tímabili þar sem stigin telja tvöfalt nánast. Þess vegna er leikurinn í dag mjög mikilvægur,“ sagði Wenger