Tekur Moyes við liði Newcastle?

David Moyes.
David Moyes. AFP

David Moyes þykir líklegastur hjá veðbönkum að taka við stjórastarfinu hjá Newcastle fari svo að Alan Pardew verði látinn fá reisupassann.

Newcastle tapaði fyrir Southampton í gær, 4:0, og þykir Pardew valtur í sessi en liðið hefur aðeins innbyrt 18 stig í síðustu 23 leikjum undir hans stjórn í ensku úrvalsdeildinni.

Moyes er sem kunnugt er án starfs en hann var rekinn frá störfum frá Manchester United undir lok síðustu leiktíðar. Steve Bruce, stjóri Hull, er einnig orðaður við stjórastöðuna hjá Newcastle sem situr á botni deildarinnar með 2 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert