Belgíski landsliðsmaðurinn Adnan Januzaj var á skotskónum með liði Manchester United í kvöld.
Januzaj lék með U21 ára liði United sem burstaði Sunderland, 4:0. Belginn léttleikandi skoraði þrennu í leiknum og Andreas Pereira eitt. Januzaj lék í 83 mínútur og enski landsliðsmaðurinn Luke Shaw lék allan fyrri hálfleikinn en hann á enn eftir að spila með aðalliðinu í deildinni.