Lambert hjá Villa til 2018

Paul Lambert.
Paul Lambert. AFP

Paul Lambert knattspyrnustjóri Aston Villa hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og gildir nú samningur hans við liðið til ársins 2018.

Lambert, sem er 45 ára gamall, tók við liði Aston Villa í júní 2012. Liðið hafnaði í 15. sæti undir hans stjórn á síðustu leiktíð en það hefur byrjað leiktíðina vel í ár og hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert