Debuchy frá í minnst 6 vikur

Mathieu Debuchy meiddist í leik Arsenal og Manchester City um …
Mathieu Debuchy meiddist í leik Arsenal og Manchester City um síðustu helgi. AFP

Franski bakvörðurinn Mathieu Debuchy sem gekk í raðir Arsenal frá Newcastle í sumar verður frá keppni næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að hafa meiðst á ökkla í leik Arsenal og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um síðustu helgi.

„Hann fer í skoðun í kvöld og þá ætti að koma í ljós hvort liðbönd séu sködduð,“ sagði Arsene Wenger við fréttamenn um meiðsli Debuchy.

Búist er við því að hinn 19 ára gamli Calum Chambers sem Arsenal keypti frá Southampton fyrir 16 milljónir punda í sumar taki stöðu Debuchy í vörn Arsenal þeg Lundúnaliðið sækir Aston Villa heim til Birmingham á morgun. Hector Bellerin lék þó í stöðunni þegar Arsenal tapaði 2:0 fyrir Dortmund í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert