Wilshere með Arsenal um helgina

Jack Wilshere í baráttu við Erik Durm í leiknum í …
Jack Wilshere í baráttu við Erik Durm í leiknum í Dortmund á þriðjudagskvöld. AFP

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal staðfesti það við fjölmiðla á fréttamannafundi nú í morgun að miðjumaðurinn Jack Wilshere gæti spilað um helgina þrátt fyrir að hafa meiðst í leiknum gegn Dortmund á þriðjudagskvöld.

Wilshere meiddist á 84. mínútu en þar sem að Wenger hafði notað allar sínar skiptingar kláraði miðjumaðurinn leikinn. Eftir leik kvaðst Wenger ekki vita hve alvarleg meiðsli Wilshere væru en sagðist hafa áhyggjur í ljósi meiðslasögu Englendingsins. Í dag hafði hann betri tíðindi að færa.

„Þetta var vinstri ökklinn hjá honum og hann fékk bara spark í hann. Það er í góðu lagi með hann,“ sagði Wenger, sem fer fram á sigur gegn Aston Villa á útivelli á morgun.

„Þetta er mikilvæg helgi þó að hún ráði ekki úrslitum. Við viljum bregðast strax við eftir frammistöðu sem olli vonbrigðum,“ sagði Wenger en Arsenal tapaði 2:0 í leiknum gegn Dortmund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert